Pabbi minn er snillingur!
Við fórum oft með honum að veiða þegar við vorum yngri, hann hefur yfirleitt veitt ágætlega, en samt á hann jú sína smelli!
Einu sinni vorum við að veiða niðrá bryggju.. hann kastaði útí og ekki leið á löngu áður en stöngin var svolítið farin að þyngjast.. svo pabbi hífði inn.. þetta var geðveikt þungt, stöngin bognaði ekkert smá… Við héldum nú aldeilis að þarna væri vænn fengur á ferð… svo hífði pabbi lengra og lengra…. og svo kom það.. sjokkið! PABBI MINN VEIDDI TUSKU!!