Titillinn segir allt um hver ég fór, jújú var að dorga og bitið var á, stöngin svignaði í U, já ég var komin með einhvern hlunk á stöngina.

Ég dró inn, en hvað haldiði að helv…hafi gert, synti hann ekki bara undir bryggjuna og festi spúninn, svekkið.

En í sömu ferð veiddi ég lítinn marhnút á stærð við klósettpappírsrúllu og veiddi einn sem var algert flikki og aðeins stærri en 2 lítra gosflaska.