Halló.
Ég er á leiðinni á námskeið í þessum mánuði og langaði að vita hvort að einhver gæti gefið ábendingar um hvað maður á að kynna sér VEL fyrir námskeiðið/prófið ?

Ég hef aldrei veitt með byssu áður né skotið svo að allar ábendingar væru vel þegnar.

Hvernig er best að undirbúa sig ? Ég er byrjaður á bókinni sem UST sendir manni fyrir námskeið…en bækur eru jú alltaf og verða bara bækur.