Mig langaði bara að benda veiðihugurum á veiðiljósmyndasamkeppnina sem vefurinn www.votnogveiði stendur fyrir.

Við hér á www.votnogveidi.is höfum nú hleypt af stokkunum samkeppni um bestu stangaveiðimyndirnar 2006 í samvinnu við Hans Petersen, www.hanspetersen.is Fjölmargir stangaveiðimenn eru snjallir myndasmiðir og fráleitt annað en að draga afrekin fram og sýna þau. Veglegir vinningar verða í boði fyrir bestu myndirnar þegar dómnefnd sker úr um í haust, að vertíð liðinni.



Svo eru verðlaunin ekki af verri endanum.

Það er eftir töluverðu að slægjast. Verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar í hvorum flokki verða vegleg, m.a. veiðileyfi stíluð á 2007 í boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Fleira í verðlaunum er einnig í farvatninu og verður nánar greint frá því síðar.

Frekari upplýsingar hér
Allt hefur enda, pylsa hefur tvo.