Nú styttist í það að ég fái B-réttindin mín, af því tilefni hygg ég á að fjárfesta í Benelli Comfort. Ég er því tilneyddur að selja pumpuna mína til þess að fjármagna hin kaupin. Þetta er Benelli Nova, svört á lit. Ég er aðeins búinn að nota hana tvisvar sinnum, eitt skipti á rjúpu á Bláfellshálsinum síðasta haust og síðan á leirdúfu stuttu eftir það. Ég er annar eigandinn að byssunni. Hún er sem ný. Þessi verður því miður að fara,40 þús. eða besta tilboð.

Byssan tekur öll skot frá 2 3/4\"-3 1/2 og kemur með þremur þrengingum og ól. Ég er einnig tilbúinn að láta með henni tösku í svörtu/camo.

Áhugasamir hafið samband í síma 692-2080

Kv. Bjarki.