Langar að benda ykkur sem stundið stangveiði á spinner sem ég rakst á í kaupfélaginu á Borðeyri er ég kom þar við á ferðalagi.
Þessi ágæti spinner heitir Lippa og á ættir sinar að rekja til Finnlands.
A pakkanum stendur Kuusamo ( trúlega framleiðslustaður) Finland ( það er nokkuð ljóst)
Balance-lippa( Tegund spinners) .
Þessi lippa er til í nokkrum litum td.Blá.Rauð.og síðan sú sem hefur reynst mér best en hun er orange,gul,og græn.
Bleikjan er ólm í þessa lippu,ég hef fengið á hinar en ekki neitt í líkingu við orangegulgrænu.
vona að hún reynist ykkur vel í sumar.