Ég er mjög sáttur við veiði þessa sumars en margar ár bættu sig til muna og er Blanda meðal þeirra.
Veiðin þetta árið var mun meiri en í fyrra og eru það góð tíðindi þar sem stofnar fiskana virðast stækka og eru það góðar fréttir fyrir veiðimenn.
Margir veiðimenn hafa haft þá reglu að sleppa felstum fiski og hefur það vissulega gert gott fyrir stofninn. Sjálfur er ég ekki í þeim hópi en hef oft hugsað mér að sleppa fiskum. Einnig hefur fiskeldi gengið vel að mér skilst og er það gott og blessað.