Ég var að kaupa mér fluguhnýtingargræjur núna um helgina. Málið er að ég veit ekkert hvaða flugur ég get búið til úr þessum efnum. Efnin sem ég á eru: Svartar gæsafjaðrir, íkornaskott, koparlitaðann tvinna, silfur- og svartlitaðann tvinna, rauðan, hvítan og svartan spotta og svo eitthvað sem líkist fjöðrum til þess að búa til peacock(kann ekki að búa hann til). Einnig kann ég ekki að gera endahnútinn(á ekki þetta ofurunit til þess að gera þennan ofurhnút). ef einhverjum dettur eitthvað sniðugt í hug, þá væri mjög gaman að fá uppskriftirnar að þeim flugum og einnig endahnútinn… annars er uhu lím örugglega fínt ;)