Ég er byrjandi(noob) í fluguveiði og ætla að kaupa mér Góðar græjur í sumar en það er eitt vandamál hvar get ég farið á kast námskeið? Ég hef stundum verið að reyna að kasta með stöngina hjá pabba en það hefur gengið ekkert sérstaklega vel!

Svo er það líka ég ÆTLA að byrja að hnýta minar eigin flugur en vandamálið við það að ég bý út á landi (Höfn í Hornafirði) þannig að það verður mjög erfitt fyrir mig að sækja námskeið útaf skólanum enda er ég bara að verða 15 ára í september.

Getur einhver sagt mér hvar kast námskeið verða haldin helds á höfuðborgar svæðinu og nágreni, auk þess hvort einhver fluguhnýtinganámskeið vera haldinn í sumar??