Ég og einn félagi minn fórum snemma á laugardagsmorgni upp að meðalfellsvatni, sem er staðsett rétt sunnan við Hvalfjörð. Þetta vatn er ekki fyrir þá sem vilja helst bara veiða á flugu, því ekki er mikið um fiskinn á fluguna, heldur veiðist mest á maðk og þá helst á bát.
Enn hvað um það, við félagarnr byrjuðum veiðina við ós sandár, sem er einn helsti veiðistaðurinn við vatnið. Við byrjuðum að veiða á peacock og aðrar púpur en ekkert gerðist, ekki einusinni smá nart og síðan prófuðum við ýmsar aðrar flugur en sagan endurtók sig í hvert skipti.
Og einn stór galli við vatnið er sá að ekki er mikið hægt að vaða í því vegna þess að það rótast svo mikið upp úr botninum að vatnið verður allt mórautt í 15 metra radíus. Þannig að það veiðist ekki mikið í þannig aðstæðum. þannig að ég mæli ekki með vatninu fyrir fluguveiðimenn. enn samt sem áður er hægt að veiða fisk þarna á góðum degi þá helst á maðk eða spún, stundum ber meira að segja á einstaka laxi.