Kæru félagar!!
Ég vil benda á fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í flugunni að panta næsta sumar hjá henni Hólmfríði í Laxá í Mývatnssveit á silungasvæðinu. Þetta finnst mér eitt það allra skemmtilegasta silungsveiðisvæði á Íslandi og ég hvet þá sem ekki hafa prófað að drífa sig því þetta er alveg einstakt svæði.
Einnig gleður mig að Hugi.is hafi tekið upp á því að opna svæði fyrir veiðimenn þar sem hægt verður að fræðast um ófarir annara og góða veiði.