Jæja þá ætlar maður að gera tilraun til að starta umræðu hérna.

Hvernig var veiðisumarið hjá ykkur, hvað stóð uppúr??

Hjá mér er það Maríulaxinn sem ég fékk á flugu í Reykjadalsá í Borgarfirði og svo tveir 4 punda urriðar annar tekinn á stöng sem er 7,6 fet fyrir línu nr.3 rosaleg barátta.

En jæja endilega segið hvað stóð uppúr hjá ykkur.