Ég var að koma úr Reykjadalsánni núna í vikunni þar eru komnir á land 46 laxar sem er aðeins slakara en í fyrra en þó ekki mikið. Athyglisvert er að það hafa aðeins 3 af þessum löxum komið á flugu. Töluvert er af fiski í ánni en hann felur sig vel undir bökkum og í slíinu.