Heilir og sælir,
Við hjá Sportmönnum Íslands getum boððið uppá veiðileyfi á ansi skemmtileg veiðisvæði´og þar af eitt sem hefur verið lokað hinum almenna veiðimanni frá um 1960. Þarna er nánast eingöngu jeppafært og um svæðið ganga nokkur þúsund sjóbirtinga, já nokkur þúsund fiska, þetta er dálítið krefjandi veiðisvæði fyrir alvöru veiðimenn. Einnig erum við með frábær veiðisvæði í bleikju og lax. Þessi svæði eru mjög fjölskyldu væn og mikið er um afþreyingu á svæðinu. Sportmenn íslands hafa einnig gert samning við eitt stærsta afþreyingar fyrirtæki á Bretlandseyjum. Þar getum við boðið uppá skot og stangarveiðiferðir, óvissu-ævintýra og árshátíðarferðir. Bill Black eigandi fyrirtækisins verður hérna í næstu viku og verður með kynningarfund í Vesturröst um næstu helgi, laugardag. Gerum verðtilboð fyrir hópa. Allar nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Hallgrímsson í símum 8921450 og 5646316