Draumaveiðiferðin væri að nesta sig vel upp, skella öllum græjum á hest og ríða af stað upp einhverja fjallshlíð. Veðrið væri gott ágætlega hlýtt en ekki glampandi sól. Örlítill vindur til að losna við mýbit. Áin væri tær fjalla á með nokkrum fossum og fallegum hyljum, fiskurinn væri í fínni stærð og alveg nóg af honum til að halda manni við efnið. Svo myndi maður veiða þarna fram eftir kvöldi og finna sér einhverja fallega laut til að tjalda í yfir nóttina. Daginn eftir myndi maður halda áfram niður eftir ánni og koma heim seinnipartinn, hress og sprækur með góða sögu að segja