Sko,
ég nota HTML til þess að setja upp síðuna, svo hef ég gagnagrunn sem geymir allt efni eins og t.d. fréttir, skilaboð á umræðusvæði, atkvæði í könnunum.
Til þess nota ég Php til þess að sækja þessi gögn úr gagnagrunni og “outpútta” þeim, þá tekur vefserverinn við og keyrir allan php kóðann í gegnum hálfgerða þýðingavél, það er að segja parserar allan kóðann.
Svo skilar vefserverinn plain HTML síðu til vafrans þíns. Html er bara “uppsetningarmál” það segir vafranum þínum hvernig hann eigi að byggja upp síðuna í vafranum þínum og hvað litir eigi að vera og svoleiðis. Php er scripting mál sem að keyrist af vefserverinum og framkvæmir umbeðnar skipanir eins og ég sagði áðan.
Hugi væri aldrei svona ef hann notaðist ekki við scripting mál eins og php til þess að sækja gögn úr gagnagrunni og hann gæti ekki tekið við texta sem þú skrifað á þetta umræðusvæði og seivað hann í gagnagrunninn.