sæl öllsömul

Ég er að reyna að finna forrit sem ég get búið til og haldið úti síðu sem ætti að vera einskonar bloggsíða en samt ekki.
ég er að fara erlendis í skóla og ætla að láta fjölskyldu og vini fylgjast með gjörðum mínum í gegnum netið til þess að ég þurfi að hafa sem minnst samskipti beint við þau(annars gæti ég bara farið í skóla hér heima).
Ef einhver veit um gott forrit sem fæst fyrir lítið væri gaman að fá að vita af því.