Jæja… er einhver hér svo fróður að vita fyrir víst hverjir kostir/ókostir þess eru að nota ASP og MySQL saman? Er PHP og MySQL miklu betri lausn, og hvers vegna ?

Ég hef heyrt að það sé einhver hraðamunur á þessu en ekki frá neinum áreiðanlegum heimildum svo sem, er einhver hér sem hefur vit á þessu og getur sagt til um hvað hið sanna er?

Með von um skjót og góð svör ;o)

solanovitz