Ég er að leita að heimili fyrir vefsíðu. Hefur einhver reynslu af því að nota HostOnce.com? Verðið er frekar lágt ($4.95) á mánuði fyrir allan pakkann (lénið, ótakmarkað pláss, ótakmörkuð e-mail og svo framvegis) og það gerir það að verkum að maður verður efins um gæði og áreiðanleika. (Þetta er allavega gefins miðað við að fá sér .is lén hjá einhverjum af þessum okrurum hérna heima, eða er kannski eitthvað á skynsamlegu verði hér?)

Þetta er reyndar svo mikill frumskógur að leita að hýsingu að nú er ég búinn að eyða hálfum degi í það og er litlu nær!

Hvað um það, gaman væri að heyra hvort einhver hefur reynslu af HostOnce eða einhverjum sambærilegum aðilum.

kveðja
sigosig
[a href="http://simnet.is/sigosig"]http://simnet.is/sigosig