Það verður seint sagt að þetta sé virkasta áhugamálið á huga, en mér finnst samt að við ættum að geta haft eitthvað upplýsingaflæði í gangi hérna, í stað þessarra týpísku spurninga um wordpress og joomla.

Ef þú ert að forrita í php eða ert að fikra þig áfram endilega sendu inn þræði hingað ef þú lendir í vandræðum, eða segðu frá hvernig grein þú værir til í að fá senda inn á áhugamálið, hvort sem það er um classes, templates, vinnslu með gögn eða mysql.

Með von um góðar undirteknir,
Egill