Ok ég myndi ekki kalla mig tölvunörda þótt að ég eyði miklum tíma í tölvuni.

en já ég var að skrá mig á síðu sem heitir www.t35.com hún bíður uppá fría hýsingu og vefsíðupláss. Mig hefur alltaf langað til að búa til heimasíðu, en samt ekki blog síðu eins og blog.central.is.

á þessari síðu þarftu að skrifa upp allt sjálfur, en ég kann bara ekki neitt á svona dót og ég var að vonast til að þið gætuð hjálpað mér. Ég kann bara þessa léttu BB kóða en ekkert fleira. getur einhver hjálpað mér. Mér er sama þótt að það sé bara þannig að ég taki einhvern kóða af annarí síðu en ég kann það greinilega ekki því að þegar að ég gerði það þá virkaði það ekki. Já Getur Einhver Hjálpað Mér.

Eða ætti ég barasta að sleppa þessu.