Getur einhver bent mér á einfalt og gott vef umsjónarkerfi, sem starfsmaður með enga reynslu í html kóðun eða þess háttar gæti séð um að viðhalda, með því að henda inn fréttum oþh.

Þetta þarf að bjóða upp á frétta möguleika, geta auðveldlega sett inn myndir, þyrfti að geta lesið inn vöruskrá úr gagnagrunni.

Í raun frekar einfalt kerfi, sem auðvelt er að vinna með, jafnvel fyrir óreynda.

Ef þið mælið með einhverju kerfi, þá væri gaman að fá link á síður sem eru settar upp með viðkomandi kerfi.

Með von um hjálpsöm svör.