Ég hef ákveðið að nota Joomla fyrir eina af þeim síðum sem ég sé um. Ég er búinn að vera að fikta í template og er að verða þokkalega sáttur.
Eitt er það þó sem pirrar mig. Dagsetningar birtast alltaf svona: Tuesday, 25 May 2004
Ég get ekki fyrir mitt litla líf fundið hvar maður breytir formatinu. Er einhver hér sem hefur notað Joomla/Mambo og man hvar þetta er gert?