Ég og annar félagi minn erum að vinna í heimasíðu sem er með fréttir um íþróttir. Við erum að vinna með Dreamweaver MX og síðan er með FTP aðgangi. En við þurfum að koma inn fréttakerfi fyrir fréttamennina og það kunnum við ekki. Er einhver hérna sem kann að setja inn fréttakerfi og er viljugur til að hjálpa okkur?? Við fáum einhverja borgun fyrir þetta en vitum ekki hversu mikið svo það er hugsanlegt að hann sem hjálpi fái einhverja þóknun ef hann krefst þess. Plís einhver að hjálpa okkur.