Ég fór áðan á heimasíðu teiknimyndahljómsveitarinnar Gorillaz (www.gorillaz.com) og ég verð að segja að þetta er einfaldlega mesta snilld sem ég hef augum litið. Til að fara á síðuna þarftu shockwave 8. Ef þú ert ekki með það skaltu ná í það fyrst(kemur automatic ef þú ferð á síðuna) eftir það getur þú skoðað herbergi hljómsveitarmeðlima, spreyjað á klósettveggina, skoðað e-mailin þeirra ofl. Þessi síða er sú flottasta sem ég hef á ævinni séð og ef þú ert ekki búinn að kíkja á hana skaltu gera það um leið og þú ert farin(n) af huga annars ertu að missa af miklu.