Ég á í smá vandræðum með að koma inn myndum á blog central síðuna mína og hef verið að nota picturetrail þar leyfist manni bara að hlaða upp eitthvað 32 myndum og þá er maður búinn með kvótann og þarft að borga til að hlaða fleyri myndum upp. Mér finnst þetta ekki ganga upp og hef verið að leita að nýrri og betri aðferð þar sem ég get hlaðið upp myndum, gert copy og svo einfaldlega paste á síðunni minni og þá sé það komið. Mér er sama þó ég þurfi að opna nýja vefsíðu eða eitthvað, bara að ég geti sett á netið og gert copy og paste. Ef þú getur með eitthverju móti bjargað mér hérna, þá þigg ég alla hjálp!