Mig vantar upplýsingar um verð á heimasíðu. Málið er þannig statt að ég smíðaði heimasíðu fyrir fyrirtæki útí bæ og ég þarf að setja eitthvern skynsamlegan verðmiða á hana. Þetta var nokkuð flókin smíði í Photoshop ásamt hellings umstangi í kringum textasmíði og myndatöku. Gæti maður sett 100.000 kr. létt á svona síðu. Heildarsíðufjöldi er kannski um 12 talsins. Ég hef bara ekki hugmynd um þetta.