Góðan daginn.

Ég hef í langan tíma ætlað að gera iFrame heimasíðu en ekki getað það vegna þess að þegar ég set iFrames í dreamweaver þá koma þessi skilaboð: “Your browser does not support inline frames or is currently configured not to display inline frames.” ´

Ég er búinn að spurja helling af liði hvað sé að og segja flestir að þetta sé explorerinn minn. Ég nota IE og ég hef ekki fundið neinar stillingar þar. Ég prufaði svo að skipta yfir í FireFox en þá komu bara somu villuskilaboðin.

Er einhver hérna sem gæti leiðbeint mér til að þetta iFrames hjá mér virki?

Með fyrirfram þökkum
- Andri
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius