Veit einhver hvar ég get nálgast kóða eða kennsluefni sem hefur með tölfræði að gera, þá er ég að meina að ákveðnar tölur eru slegnar inn í grunn, sem eru þá heildartölur fyrir eitthvað ákveðið magn af einhverju pr./ár.
Úrlesturinn á að birtast í prósentuformi og grafikin í súlum eða kökum eftir því sem beðið er um.
Ég gat ekki fundið neitt um þetta hér á Huga og veit ekki hvernig ég á að bera mig að á erlendu síðunum, þ.e.a.s. hvað þetta kallast á ensku.
Ég vona að ég hafi gert mig nógu skiljalegan :)