Ég hef verið að velta fyrir mér hvar ég ætti að fá mér vefhýsingu, hef verið að spá í erlendum fyrirtækjum og lesið mig mikið til, en þegar það kemur að fyrirtækjum á íslandi þá hef ég ansi lítið fyrir framan mig, þannig ég ákvað að spyrja aðeins til um það hérna.

Einfaldlega þá þarf ég bara að vita hver eru aðal fyrirtækin hérna á Íslandi sem bjóða upp á vefhýsingu? Væri mjög gott að hafa úr fleiri en einu fyrirtæki að velja svo maður gæti skoðað munin á tilboðum þeirra.