Ég er mjög lélegur í svona flest öllu sem við kemur tölvum en langar að gera mér heimasíðu. Undanfarið hef ég verið með fólk.is síðu, ætla núna að breyta til vegna þess að það er svo mikið álag á fólk.is gagnagrunninum að það tekur allt svo langan tíma. Ég hef ákveðið að gera mér easy.go.is síðu vegna þess að ég hef séð þannig síður og þær hafa bókstaflega heillað mig upp úr skónum, en það er stór galli. Ég kann ekkert á þetta, er einhver hérna sem kann þetta og getur leiðbeint mér smávegis?