Ég er aðeins farinn að skrifa sjálfur svona PHP og byrjaði á gestabók. Það er þannig að allt hefur gengið vel þangað til að ég fattaði að ég þyrfti örugglega einhvern tímann að breyta eða jafnvel eyða því sem gestir hafa skrifað í gestabókina. Gestabókin er skrifuð í MySQL. Ég hélt að þið þyrftuð hugsanlega upplýsingar um töfluna sem ég nota svo þið getið hjálpað mér.
Upplýsingar um töflu:
Hún heitir “gestabok”
(Svo er alltaf eitthvað inní henni sem ég veit ekki hvað heitir en þið komist örugglega að ef ég nefni):
name
date
email
comment
id.
Getur einhver hjálpað mér, bent mér á scriptu eða skrifað, þetta er örugglega mjög einfalt fyrir þá sem kunna á þetta. Ég er ekki að biðja um flókinn kóða heldur bara einn sem getur eytt og breytt skilaboðunum.