Sælir.

Þannig er mál með vexti að ég hef verið með asp síðu fyrir ákveðna aðila sem geta skráð upplýsingar og svarað spurningum á einfaldann hátt og hafa uppl. vistast í access gagnagrunn og ég getað skoðað þær þar.

Ég er enginn rosa vefforittari en tókst þó að hamra þetta saman á sínum tíma. Nú þyrfti ég að gera miklar breytingar á þessu og langar að skipta þessu út fyrir einfaldara kerfi, þar sem ég get breytt forminu með litlum fyrirvara og skoðað gögnin á þægilegri hátt úr grunninum og jafnvel prentað.

Ég hef heyrt góða hluti um PHP en ekkert lagt upp úr því að kynna mér það nema að litlu leiti en ég var að velta því fyrir mér hvort ekki væri til einfalt tól sem hjálpaði mér að gera svona lagað. Ég er alveg til í að skipta öllu draslinu út fyrir eitthvað sem hefur meiri möguleika og er jafnvel einfaldara.

Endilega komið með tillögur og bendið mér á forrit sem ég get notað við þetta.<br><br>„We are all in the gutter, but some of us are looking at the stars.“

„Jesus is coming, look busy“
„We are all in the gutter, but some of us are looking at the stars.“