Komið þið sæl.

Ég er í dálitlum vandræðum með rétta stafrófsröð á íslensku úr MySQL gagnagrunni. Hún lítur afskaplega eðlilega út, nema hvað varðar á, í, ó og aðra “kommustafi”. Þeir koma neðarlega (milli æ og þ ef ég man rétt).

Vefsíða sem vandamálið er á: <a href="http://www.baldurmcqueen.com/law“>Hérna</a>

Týpísk ”segð“ í php þar sem ég kalla á röðun eftir íslenskunni:

$result = mysql_query(”SELECT * FROM ordalisti WHERE ucase(islenska) LIKE ucase('%$leitarord%') ORDER BY LCASE(islenska) ASC", $db);