Ég er doldið mikið fyrir að sækja mér tilbúin phpscript á netinu og fikra mig og fikta í þeim, þannig lærði ég nú einmitt þessa kúnst og hef ekkert hætt þessari leið að bæta mig í vefforritun en mér langaði að vita hvort að þið vissuð um einhverja útfærslu af einhverju alveg rosalega einfaldri símskrá á netinu, ég á mjög auðvelt með að fá fá hugmyndir um eitthvað tengt php og oftast finn ég nóg af því sem að ég er að leita að en að finna php símaskrá gefins á netinu það hefur reynst þrautinni þyngri skal ég segja ykkur!