Sælir hugamenn og konur.

Hvað er sanngjarnt verð fyrir vef? Til dæmis var verið að biðja mig um að gera vef sem keyrir á gagnagrunni, þarf að vera með fréttakerfi(á ensku og íslensku), póstlistakerfi, halda utan um starfsmenn o.fl. Ég þarf líka að hanna vefinn fyrir utan logo og einhverjar myndir og svoleiðis. Ég hef þónokkuð mikla reynslu í þessum málum þannig að þessu aðili kemur til með að fá góðan vef.

Nú geri ég mér grein fyrir því að það er allt vaðandi í vefumsjónarkerfum sem þessi aðili gæti keypt þannig að ég get nú ekki verið að rukka sama og þeir, en ég vil nú samt ekki vera að gefa þeim vinnuna mína.

Getur einhver gefið mér hugmynd um verð, ég vil ekki setja upp of hátt verð, sem yrði til þess að ég gæti misst af þessu verkefni.

Bestu kveðjur,
-puff