Vinsamlegast verið ekki að skammast yfir spurningum sem ykkur finnst vera fyrir neðan ykkar virðingu að svara. Þessi vefur er fyrir samskipti um vefsíður og vefsíðugerð og þó að kasmír og fleira slíkt sé nú ekki stíf vefsíðugerð þá eiga þessar spurningar alveg rétt á sér. Ef þið þolið ekki kasmír(sem ég skil ekki af hverju fer í taugarnar á ykkur. Skoðið þær síður bara ekki) þá skulu þið lesa bara næsta topic á eftir.

Þannig að héðan í frá skulu þið reyna svara spurningum í staðin fyrir að rífa kjaft. Allt diss og öll leiðindi mun ég héðan frá eyða bara út. Rifrildi eru í lagi ef þau eru málefnaleg og eru ekki búnar að breytast í skítkast. Svoleiðis verður eytt. Ef þið fílið það ekki og farið að rífast útaf því þá verður því eytt. Ef þið sendið mér póst til að mótmæla þá mun ég lesa yfir hann en síðan líklega eyða honum.
Ekki skilja þetta sem þannig að ég láti banna ykkur. Bara þangað til að þið róið ykkur niður þá mun ekki heyrast bofs í ykkur á korkinum. :)<br><br><b>——————————
Jón Grétar Borgþórsson
<a href="http://www.jongretar.com/">http://www.jongretar.com/</a></