Ég er að leita að hentugri hýsingarlausn fyrir mig og rekst nú í sífellu á tilboð þar sem hýsingaraðili sér um að taka frá fyrir mann lénsheitið sem maður kýs, gegn því skilyrði að maður hýsi það hjá þeim.

Setjum sem svo að ég geri þetta og vilji svo skipta um hýsingaraðila. Vakna ég þá ekki bara upp við það að mikilvæga lénið mitt er í eigu hýsingarþjónustunnar og ég þarf annað hvort að halda áfram hjá þeim eða missa það? Þetta lýst mér MJÖG illa á.

Getur einhver frætt mig frekar um þetta? Og fyrst ég er að korkast hér, getur einhver bent mér á hagkvæma hýsingarlausn. Vantar ábyggilega 50Mb og Perl-stuðning ásamt nokkrum e-mail addressum.<br><br><b>sverrsi skrifaði:</b><br><hr><i>“Þa er mjög hættulegt. Það getur leitt til offitu, húðsjúkdóma, skellinöðruaksturs og þaðan af verra.”</i><br><h