Hei hó.

Er í smá vandræðum, ég var að henda saman smá ASP dóterí (JScript) sem sér um fréttir, þetta basic, vista, eyða, breyta. Keyrir á Access.

Vandamálið sem ég er að kljást við er að þegar ég var að vinna þetta heima á lappanum að þá kom aldrei upp neitt vandamál, en um leið og ég setti þetta á brinkster, fæ ég alltaf upp

Microsoft JET Database Engine error ‘80040e07’
Data type mismatch in criteria expression.

Ekki sáttir við SQL-skipunina, ég geri sterklega ráð fyrir því að þetta er dagsetningar vandamál. Ég hélt að þetta væri kannski útaf mismunandi kerfum, (þ.e.a.s ameríska (mm/dd/yyyy) en ég er með allar dagsetningar á dd/mm/yyyy), ég prófaði því að stilla Locale ID-ið fyrir is, en það gengur ekki.

Any ideas?<br><br>ask | bergur.is