Ég hef verið að nota erlent vefhótel fyrir síðuna mína en núna er ég að fara í það að gera síðu á íslensku og væri nú skemmtilegast að hafa íslenskt lén fyrir hana.

Þetta erlenda vefhótel sem að ég er hjá er tilbúið að hýsa lénið mitt fyrir um 2000 kr á mánuði($25), og ég hef verið að leita mér að aðila sem að selur manni íslenskt lén ódýrt án þess að maður þurfi að hýsa það hjá þeim.
Það ódýrasta sem að ég hef fundið er hjá vefhotel.com þar sem að það kostar 12.900 fyrir árið, en mig langar til að vita hvort ekki sé hægt fá þetta ódýrara neins staðar annars staðar?