Ég er að velta fyrir mér að setja upp vefsíðu sem væri með reglulegum uppfærslum. Þá er ég að hugsa um forsíðu með yfirliti/kafalskiptingu/tenglum og fyrirsagnasvæði, þar sem fyrirsagnir ásamt textabrotum og jafnvel myndum myndu koma og með smell myndi maður fá heildar greinina eða hvað sem um er að ræða.

Allt þyrfti að vera flokkað í flokka og auðveldlega aðgengilegt. Auðvitað þarf þetta helst að vera ókeypis og hostað þar sem mér hentar.

Dáldið drastískt stökk fyrir gaur sem getur rétt svo stautað sig fram úr basic-HTML, enda finnst mér ég vera alger auli að spyrja að þessu.

Allar ráðleggingar vel þegnar og sömuleiðis spurningar.<br><br><b><b>Tilvitnun:</b><br><hr><i>I'm feeling supersonic, give me gin and tonic</i><br><hr></