Ekki vill svo til að einhver hér hafi prófað að vinna með MMS skeyti. Ef svo er vitið þið hvort það þurfi eitthvað sérstakt encoding eða þess háttar ef maður er að senda mynd með MMS skeytinu. Ég hef verið að vinna með þetta undanfarna daga og fæ alltaf “Bad error in message Data” þegar ég reyni að senda MMS skeyti með mynd. Ef ég sendi bara texta þá gengur allt eins og í sögu.

Ég er reyndar ekki að gera vef, heldur hugbúnað í Delphi en ákvað að pósta þessu hérna inn þar sem Forritunarkorkurinn er svo lítið lesinn, auk þess taldi ég líklegra að einhver hér hefði kanski verið að vinna með þetta.