Hæ allir, mig vantar hjálp í php. Ég kann ekki mikið í því en nota það sem ég kann á síðuna mína ef ég þarf þess. Ég er með gestabók sem ég gerði að hluta til úr öðrum kóða (open source:) og er þannig að hún geymir gögn í xml skrá (nenni ekki að vesenast með mysql dæmi). Vandinn er sá að ég kann ekki að láta hana opnast á fleiri síðum, allt draslið er á einni síðu.
www.myrkur.is/?id=5
Ef einhver kann að laga þetta mun sá hinn sami verða verðlaunaður og mun njóta almennrar hylli hjá mér sem er ekkert smá. Annars má einhver hafa samband og þá mun ég hugsanlega senda kóðann.
Takka pent.
td@myrkur.is