ég veit ekki alveg hvort þetta passar inn í þetta áhugamál en ég ætla samt að leggja þessa spurningu fyrir ykkur:

Málið er það að ég er að fikta við að gera heimasíðu á geocities, er bara að dúlla mér.

Ég er búin að downloada fullt af flottum fontum, en ég kann ekki að gera neitt meira!
Ég downloada þessu, og þetta kemur í zip fæl, og svo er ég bara strand :) veit ekki hvað ég geri svo.

Veit einhver hvað ég geri, og hvernig ég get bætt þessu í pagebuilderinn á geocities?

Það væri alveg geggjað að fá smá hjálp :)