Nú langar mig alveg rosalega að læra php og hef verið að klóra mig áfram með misjöfnum árangri. En málið er að ég er með pláss hjá simnet en ekki minn eigin server. Þegar það er verið að segja manni að installa mysql eða eitthvað slíkt virkar það á mig eins og það sé fyrir eigin server, sem ég hef ekki.

Get ég þá ekki gert jafn mikið hjá simnet eins og ef ég væri með minn eigin server (haft gagnagrunna og annað slíkt)?

Þar sem ég fatta ennþá mjög lítið hvað ég get gert veit ég eiginlega ekkert hvernig ég á að spyrja að þessu. En ég vona að einhver hafi skilið mig. ;)
Með fyrirfram þökk
-Shimo
=)