Hæhæ,

Er að bögglast í því að reyna að setja PHP og MYSQL inná Windows NT server sem að ég hef aðgang að. Málið er að kerfisstjórinn hefur ekki tíma til að gera þetta sjálfur og ég verð því víst að reyna að klóra mig framúr þessu ef ég vil sjá þetta gerast fljótlega :) Málið er að ég veit í raun ekki alveg hvað ég er að gera, er með smá detailed upplýsingar um hvernig skuli installa þessu en það var ein setning þar sem benti mér á að ef að ekki væri rétt farið að, að þá gæti ég krassað öllu heila klabbinu ;)

Er einhver hérna sem gæti hjálpað mér með þetta mál og kannski svona sagt mér hvort að þetta sé vonlaust mál fyrir svona fiktara eins og mig eða hvort að mér ætti nú að takast að klóra mig fram úr þessu vandamáli.

Er þetta ekkert flóknara heldur en að runna install inná servernum eða þarf að fínstilla þetta dæmi eitthvað. Ég er nefnilega að vinna í því að henda upp spjallborði sem þarf bæði MySQL og PHP.

Öll hjálp væri vel þegin :)

Kveðja,

STi