Ég get ómögulega náð að vista hreyfimyndir hjá mér. Ef ég vista þær þá hætta þær að hreyfast og verða bara venjulegar myndir.
Eini möguleikinn sem ég fæ í Save as er BMP file en á ekki að vista þetta undir GIF? Ég hef náð að vista sumar sem GIF en það er alveg sama, þær hætta að hreyfast. Ég er að reyna að koma þessu inn á síðu hjá mér en fæ þetta ekki til að virka.
Ég vil geta haft myndina inni hjá mér en ekki alltaf tengja þær af öðrum síðum.
Vonandi getur einhver hjálpað mér, ef einhver hefur skilið nöldrið í mér.

Pilapina.