Ég er byrjandi í vefsíðugerð. Ég gerði síðu hér á Huga.is og fannst það fínt en ákvað að prófa að gera síðu þar sem ég þurfti að nota pínu html og ég gerði það. Það var soldið bras en ég notaði litla forritið mitt, frontpage express, til að koma mér af stað. Og viti menn, mér tókst að gera litla sæta síðu, að vísu með heavy graphics, sem hlaðast misjafnlega inn hjá fólki. Það er seinnitíma vandamál. Mér þætti rosalega vænt um að fá comment á síðuna mína frá ykkur. Ekki vera samt of vond við mig, þetta er nú einu sinni fyrsta síðan mín, ever, utan við litlu síðuna mína hér á Huga.is

Hér er urlið að nýju síðunni minni
http://kristall.250x.com

Takk fyrir mig
kristall