Loksins fann ég mutator sem gerir eitthvað að viti. Þessi gerir mér kleyft að taka út þau vopn sem mér líkar illa við og setja önnur í staðin. Jafnvel get ég ruglað þeim fram og til baka.

Að sjálfsögðu það fyrsta sem ég hafði áhuga á að gera var að taka út þennan heilvítis shock riffil sem er að gera mig brjálaðan. Þetta vopn er gersamlega að eiðileggja þennan leik að mínu mati.

Þannig að núna (þar til annað breytist) verður SIMNET CTF Server 2 með engum shock riffli. Ég setti ekkert annað vopn í staðin, núna er bara ekkert þar sem áður var shock. Ef annað vopn yrði þarna í staðin kæmi það oft tvisvar fyrir á einhverjum borðum sem er náttúrlega bara fáránlegt.

Sjáum svo hvað menn segja við því.

Alli