Sælir félagar UT spilarar :)

Ég setti upp einn UnrealTournament þjón fyrir okkur og er hann vonandi kominn til að vera. Verið nú stilltir og ekki skemma þjóninn.

Þjóninn er á unreal.opex.is:7777 (81.15.38.115:7777), þegar ég set þessa tilkynningu inn þá eru DNS þjónar ekki búnir að meðtaka breytinguna á unreal.opex.is þannig að þið gætuð þurft að nota IP töluna til að tengjast svona fyrstu 24 tímana. Passwordið á leikinn er “opex” :) Hann keyrir á FreeBSD.

Castrate er með aðgang að Admin vefnum og mun hann sjá um að úthluta því.

Ps. Þið sem eru að spá í því hvað Opex er þá er ég að stofna fyrirtæki með nokkrum félögum mínum. Við erum mikið í vefhýsingum, vefforritun og allskonar dóti tengdu tölvum :)

Kv,
Bergur Haukdal